1
00:00:02,000 --> 00:00:07,000
Downloaded from
YTS.MX

2
00:00:08,000 --> 00:00:13,000
Official YIFY movies site:
YTS.MX

3
00:00:43,600 --> 00:00:48,120
Umferð á norðurleið er stöðvuð
á þjóðveginum við Helsingjaeyri

4
00:00:48,200 --> 00:00:50,680
og nokkrir neyðarbílar
eru á leiðinni...

5
00:00:50,760 --> 00:00:52,520
Vinsamlegast hleypið þeim fram hjá.

6
00:00:52,600 --> 00:00:55,080
Orsök slyssins eru óljós
að svo stöddu.

7
00:01:02,320 --> 00:01:08,400
Það gæti tekið 30 mínútur í viðbót
áður en umferð fer af stað aftur.

8
00:01:08,480 --> 00:01:13,280
Hið minnsta verk hans mikið er

9
00:01:13,360 --> 00:01:18,360
Um mátt hans allt ber vottinn

10
00:01:18,440 --> 00:01:23,240
Þótt kóngar fylgdust allir að

11
00:01:23,320 --> 00:01:28,280
Með auð og veldi háu

12
00:01:36,360 --> 00:01:40,880
Í huga Elisabeth var kærleikurinn
ekki aðeins hugtak.

13
00:01:43,120 --> 00:01:47,160
Það var leið til að lifa,
leið til að starfa sem prestur.

14
00:01:48,080 --> 00:01:52,280
Leið til að vera móðir og maki.

15
00:01:55,520 --> 00:01:57,640
Þið voruð henni allt.

16
00:02:12,480 --> 00:02:15,240
Má ég bera hana?

17
00:02:52,120 --> 00:02:55,240
Er eitthvað um að vera á eftir?
Kaffi kannski?

18
00:02:58,160 --> 00:02:59,480
Nei.

19
00:03:22,000 --> 00:03:23,960
- Sæl, Regitze.
- Sæll, Heine.

20
00:03:24,040 --> 00:03:26,120
Gott að við getum
gert þetta saman.

21
00:03:26,200 --> 00:03:27,840
- Já.
- Já...

22
00:03:28,880 --> 00:03:32,600
Prestssetrin eru embættisbústaðir
og nýi presturinn er óþreyjufullur.

23
00:03:32,680 --> 00:03:36,880
Ég hef hringt í Jan nokkrum sinnum
en hann er ekki enn farinn að pakka

24
00:03:37,680 --> 00:03:39,120
eða að taka þetta alvarlega.

25
00:03:39,200 --> 00:03:41,680
Prestssetur er embættisbústaður.

26
00:03:41,760 --> 00:03:43,960
- Já.
- Nýi presturinn þarf að flytja inn.

27
00:03:44,040 --> 00:03:45,400
Jan.

28
00:03:46,520 --> 00:03:48,480
Við skiljum sorg þína og áfall.

29
00:03:48,560 --> 00:03:51,120
En lífið heldur áfram
og hefur upp á margt að bjóða.

30
00:03:51,640 --> 00:03:54,560
Ég er með bók handa þér:
Tekist á við sorgina.

31
00:03:55,840 --> 00:03:57,160
- Jan.
- Pabbi.

32
00:03:57,240 --> 00:03:58,640
Þvílík vitleysa.

33
00:03:59,560 --> 00:04:00,880
Bölvaður drullusokkur!

34
00:04:04,120 --> 00:04:05,440
Pabbi?

35
00:04:07,640 --> 00:04:11,760
Komdu fram, pabbi.
Heine er farinn. Pabbi?

36
00:04:19,440 --> 00:04:20,760
Frábært.

37
00:04:23,880 --> 00:04:28,960
- Ég skal laga kaffi.
- Við þurfum að opna eitt saman.

38
00:04:34,400 --> 00:04:36,600
"Hörpuleikur minn varð
að sorgarljóði,

39
00:04:36,680 --> 00:04:39,680
flautuleikurinn harmakvein."

40
00:04:49,400 --> 00:04:54,160
Við verðum að opna þetta.
Fyrst hún er ekki hér lengur.

41
00:04:54,240 --> 00:04:55,840
Svo var mér sagt.

42
00:05:17,960 --> 00:05:19,280
Kæru þið...

43
00:05:21,040 --> 00:05:22,960
Kæru, kæru þið tvö...

44
00:05:25,560 --> 00:05:27,800
Ég stend fyrir framan
Gullna hliðið.

45
00:05:28,760 --> 00:05:32,120
Ég ligg nú reyndar í rúminu
en þið vitið hvað ég á við.

46
00:05:33,560 --> 00:05:36,160
Mér finnst ég örugg. Ég hef trúna.

47
00:05:36,920 --> 00:05:39,800
Sorg mín og áhyggjur beinast aðeins
að ykkur tveim.

48
00:05:43,880 --> 00:05:45,600
Þegar maður er fjölskylda,

49
00:05:45,680 --> 00:05:47,920
einkum lítil fjölskylda
sem okkar,

50
00:05:48,600 --> 00:05:52,240
þarf að leggja sig fram um að vera
til staðar fyrir hvert annað.

51
00:05:52,840 --> 00:05:55,280
Sama hver ágreiningurinn
eða ósættið er.

52
00:05:57,720 --> 00:06:00,440
Regitze, Jan er faðir þinn.

53
00:06:00,520 --> 00:06:02,720
Það stoðar ekkert
að vera fúl út í hann.

54
00:06:04,320 --> 00:06:06,120
Þú átt ekki annan föður.

55
00:06:08,360 --> 00:06:10,600
Og Jan, þú átt ekki aðra dóttur.

56
00:06:10,680 --> 00:06:13,680
Svo taktu þig taki,
þótt þú verðir að kyngja stoltinu.

57
00:06:15,480 --> 00:06:19,040
Stundum þarf að fara langt
til að hittast á miðri leið.

58
00:06:21,640 --> 00:06:25,480
Regitze, við faðir þinn töluðum um
að ganga Jakobsveginn.

59
00:06:26,680 --> 00:06:29,600
Frá Astorga
til dómkirkjunnar í Compostela.

60
00:06:31,040 --> 00:06:33,160
Mig hefur dreymt um þetta
allt mitt líf.

61
00:06:34,440 --> 00:06:35,760
Nú verður ekkert af því.

62
00:06:38,440 --> 00:06:41,000
Því er mín hinsta ósk...

63
00:06:43,600 --> 00:06:45,600
að þið tvö
gangið saman Jakobsveginn.

64
00:06:46,880 --> 00:06:48,480
Það mun gera ykkur gott.

65
00:06:50,680 --> 00:06:52,840
Farið vel með ykkur
og hvort annað.

66
00:07:09,880 --> 00:07:13,080
- Jakobsveginn?
- Einmitt.

67
00:07:14,160 --> 00:07:15,480
Já, Jakobsveginn.

68
00:07:16,440 --> 00:07:19,440
- Tvö hundruð og sextíu kílómetra.
- Ég skil.

69
00:07:20,600 --> 00:07:21,920
Tekur 11 daga.

70
00:07:25,080 --> 00:07:26,400
Ellefu daga?

71
00:07:32,120 --> 00:07:34,840
Ég veit ekki.
Kannski er til styttri leið

72
00:07:34,920 --> 00:07:36,680
sem við gætum gengið á einni helgi.

73
00:07:41,440 --> 00:07:43,000
Saknarðu hennar ekkert?

74
00:07:45,200 --> 00:07:47,120
Sakna ég hennar? Ja...

75
00:07:48,440 --> 00:07:50,760
Hún er mamma mín.
Auðvitað sakna ég hennar.

76
00:07:52,520 --> 00:07:55,960
Þá ættirðu kannski að íhuga
að virða hennar hinstu ósk.

77
00:08:16,160 --> 00:08:17,760
Svo hvað ætlið þið að gera?

78
00:08:21,040 --> 00:08:23,960
Ég er ekki viss. Þú veist
hvernig þetta er á milli okkar.

79
00:08:30,640 --> 00:08:32,840
Þið gætuð rætt málin
ef þið færuð í gönguna.

80
00:08:37,560 --> 00:08:38,880
Já.

81
00:08:46,560 --> 00:08:49,560
- Hvar er hún grafin?
- Í duftgarðinum.

82
00:09:11,000 --> 00:09:14,280
Halló!
Ekki henda blómunum ykkar hérna.

83
00:09:16,080 --> 00:09:18,520
Mamma mín var jarðsett hérna.

84
00:09:19,920 --> 00:09:21,720
Ekki þarna. Þetta er bara grasflöt.

85
00:09:21,800 --> 00:09:24,800
Duftgarðurinn er hér fyrir neðan,
í birkilundinum.

86
00:09:26,720 --> 00:09:28,040
Allt í lagi.

87
00:09:29,000 --> 00:09:30,320
Gjörðu svo vel.

88
00:09:34,320 --> 00:09:36,240
Þetta verður langt ferðalag
með honum.

89
00:09:36,880 --> 00:09:39,320
Og hvað með aðstæður þínar?

90
00:09:40,480 --> 00:09:42,600
Talaðir þú við Hollendinginn?

91
00:09:42,680 --> 00:09:44,680
Heldurðu að þetta verði of hlýtt?

92
00:09:47,000 --> 00:09:49,800
Ég skil að þetta gæti virst flókið.

93
00:09:49,880 --> 00:09:51,480
- Já.
- En talaðir þú við hann?

94
00:09:51,560 --> 00:09:53,400
Nei, ég hef ekki komist í það.

95
00:09:57,520 --> 00:09:59,240
Þetta er pabbi aftur.

96
00:09:59,880 --> 00:10:03,240
Nú er það eitthvað um stein
í bakpokanum.

97
00:10:03,320 --> 00:10:04,640
Hvað þá?

98
00:10:09,120 --> 00:10:12,280
Hann sendi mér aldrei skilaboð
en drekkir mér nú í þeim.

99
00:10:14,160 --> 00:10:16,040
Nú er það eitthvað um stein...

100
00:10:26,400 --> 00:10:28,920
Það myndi gleðja móður þína
að sjá okkur núna.

101
00:10:29,480 --> 00:10:30,800
Algjörlega.

102
00:10:34,200 --> 00:10:36,120
Það er ljúffengur matur þarna...

103
00:10:37,800 --> 00:10:40,160
Ég hlakka til
að smakka smá Caldeirada.

104
00:10:43,440 --> 00:10:46,920
Við erum nú ekki að fara í gönguna
til að éta og drekka.

105
00:11:26,560 --> 00:11:28,800
- Hvað er þetta?
- Göngupassinn.

106
00:11:32,960 --> 00:11:35,080
Ég heiti Joaquin.
En þú?

107
00:11:35,160 --> 00:11:37,360
- Ég heiti Jan.
- Velkominn, Jan.

108
00:11:37,440 --> 00:11:38,880
- Fyrsta gangan?
- Já.

109
00:11:40,480 --> 00:11:42,880
- Dásamlegt. Buen Camino.
- Takk fyrir.

110
00:11:44,200 --> 00:11:45,520
- Gjörðu svo vel.
- Hæ.

111
00:11:46,120 --> 00:11:48,000
Ég er Joaquin. Hvað heitir þú?

112
00:11:48,080 --> 00:11:50,760
- Regitze.
- Gaman að kynnast þér.

113
00:11:50,840 --> 00:11:53,040
Er þetta fyrsta gangan?

114
00:11:53,120 --> 00:11:57,400
Já. Móðir mín var
að deyja úr krabbameini...

115
00:11:57,480 --> 00:11:59,760
- Þetta var hennar hinsta ósk.
- Frábært.

116
00:12:00,960 --> 00:12:02,280
Buen Camino.

117
00:12:06,360 --> 00:12:08,880
- Svona.
- Fyrsta skrefið.

118
00:12:08,960 --> 00:12:11,960
Það sögðum við mamma þín
þegar við byrjuðum á einhverju nýju.

119
00:12:12,040 --> 00:12:13,360
"Fyrsta skrefið."

120
00:12:16,120 --> 00:12:17,440
Það hef ég aldrei heyrt.

121
00:12:20,080 --> 00:12:21,600
Við sögðum það nú samt.

122
00:12:22,680 --> 00:12:24,000
Gott og vel.

123
00:12:24,720 --> 00:12:26,040
Ljómandi.

124
00:12:30,160 --> 00:12:32,440
- Fyrsta skrefið.
- Fyrsta skrefið.

125
00:12:32,520 --> 00:12:35,160
DAGUR 1

126
00:12:35,240 --> 00:12:38,320
260 KM EFTIR

127
00:12:40,200 --> 00:12:42,160
Google segir
að við séum komin of langt.

128
00:12:43,320 --> 00:12:47,640
Fyrsta kortið var teiknað
á leirtöflu um 4000 fyrir Krist.

129
00:12:47,720 --> 00:12:51,480
- Ég held við spjörum okkur.
- Við þurfum að fara til baka hér.

130
00:12:51,560 --> 00:12:54,520
- Og síðan beygjum við til hægri.
- Við höfum gengið of langt.

131
00:12:55,080 --> 00:12:57,600
Við þurfum að fara til baka
og beygja til hægri.

132
00:13:00,400 --> 00:13:01,720
Buen Camino!

133
00:13:07,120 --> 00:13:08,960
Sumt fólk tekur leigubíl
út úr bænum.

134
00:13:09,840 --> 00:13:11,280
Við gætum gert það líka.

135
00:13:13,600 --> 00:13:17,280
Pílagrímar hafa gengið hér um
allt frá miðöldum.

136
00:13:17,360 --> 00:13:19,160
Þetta er 1200 ára gömul hefð.

137
00:13:22,880 --> 00:13:24,560
Alveg hreint töfrandi.

138
00:13:31,760 --> 00:13:33,160
Þú tókst ekki mikið með þér.

139
00:13:34,120 --> 00:13:36,840
Við erum á Spáni.
Það er sólríkt og hlýtt.

140
00:13:39,760 --> 00:13:42,360
Tvö hundruð og sextíu kílómetrar
í þessum strigaskóm?

141
00:13:43,360 --> 00:13:46,240
Ég held þú hafir ekki skilið
um hvað þessi ganga snýst.

142
00:13:47,320 --> 00:13:51,720
Jakobsvegurinn leiðir göngumanninn
í alla visku. Skítt með skóna.

143
00:14:01,200 --> 00:14:03,160
Ímyndaðu þér ef móðir þín væri hér.

144
00:14:04,440 --> 00:14:06,600
Hún myndi syngja:
"Upp, skapað allt... "

145
00:14:07,360 --> 00:14:09,400
Hún var með svo fallega rödd.

146
00:14:10,080 --> 00:14:12,400
Þú myndir örugglega segja henni
að þegja.

147
00:14:14,000 --> 00:14:15,320
Því segir þú það?

148
00:14:16,960 --> 00:14:18,280
Vegna þess að...

149
00:14:18,960 --> 00:14:21,480
Þú gerðir það alltaf þegar hún söng.

150
00:14:21,560 --> 00:14:25,160
Nei, það gerði ég ekki.
Við sungum oft saman.

151
00:14:35,440 --> 00:14:37,600
- Buen Camino.
- Buen Camino.

152
00:14:39,600 --> 00:14:41,400
- Buen Camino.
- Sæl.

153
00:14:48,280 --> 00:14:51,560
Þetta er allt í lagi, pabbi.
Við munum þetta bara ekki eins.

154
00:14:59,600 --> 00:15:02,800
Þið sunguð örugglega þegar þið
voruð bara tvö ein.

155
00:15:03,920 --> 00:15:06,480
Hvað veit ég um það?

156
00:15:07,920 --> 00:15:10,000
- Buen Camino.
- Buen Camino.

157
00:15:24,280 --> 00:15:25,600
Ja...

158
00:15:27,400 --> 00:15:29,640
Það eru enn 16 kílómetrar eftir.

159
00:15:56,840 --> 00:15:58,320
Þarftu að hvíla þig?

160
00:16:13,840 --> 00:16:15,800
Nei, hættu nú.

161
00:16:15,880 --> 00:16:17,960
Við þurfum að sprengja þær.

162
00:16:18,520 --> 00:16:21,360
- Gerði Jakobsvegurinn þetta?
- Já. Stórar.

163
00:16:21,920 --> 00:16:24,960
Ég held að þú sért ekki
í réttu skónum fyrir gönguna.

164
00:16:25,040 --> 00:16:27,720
- Nú, er það?
- Já, og ég held að þú þurfir...

165
00:16:29,160 --> 00:16:31,440
- að stinga gat á þessar.
- Ég var að segja það.

166
00:16:31,520 --> 00:16:33,040
Já.

167
00:16:33,120 --> 00:16:35,320
- Ég er með þetta.
- Ég get gert þetta sjálfur.

168
00:16:35,400 --> 00:16:37,000
Nei! Þetta er fínt hjá henni.

169
00:16:42,640 --> 00:16:45,320
- Ég náði þessu.
- Fínt að þú náðir öllu.

170
00:16:45,400 --> 00:16:46,960
- Gott og vel.
- Flott.

171
00:16:47,680 --> 00:16:49,000
Betra?

172
00:16:50,880 --> 00:16:53,520
- Þakka þér fyrir.
- Ég er Mirna. Ég er frá Króatíu.

173
00:16:54,040 --> 00:16:58,400
Þetta er Jan. Og ég er Regitze.
Frá Danmörku.

174
00:16:58,480 --> 00:17:01,480
- Buen Camino. Sjáumst!
- Buen Camino.

175
00:17:05,120 --> 00:17:08,240
- Fallegt af henni.
- Mikið afskaplega var hún pirrandi.

176
00:17:20,560 --> 00:17:23,120
- Ertu að verða búinn?
- Já.

177
00:17:24,040 --> 00:17:25,800
- Drífðu þig nú.
- Sæl.

178
00:17:27,160 --> 00:17:28,640
- Sæll.
- Noregur.

179
00:17:28,720 --> 00:17:30,880
- Danmörk.
- Ég er frá Osló.

180
00:17:30,960 --> 00:17:33,840
Ég er frá Kaupmannahöfn. Hæ.

181
00:17:34,640 --> 00:17:39,480
- Ertu ein á Jakobsveginum?
- Ég geng með pabba mínum.

182
00:17:40,880 --> 00:17:44,960
Ég ætlaði að ganga með kærustunni
en við hættum saman.

183
00:17:45,040 --> 00:17:47,040
Ókei. Ég skil.

184
00:17:48,200 --> 00:17:51,240
- Það gekk ekki upp. Einmitt.
- Nei.

185
00:17:52,080 --> 00:17:53,400
Svona er þetta.

186
00:17:53,480 --> 00:17:56,920
Við töluðum um að kaupa hús,
rafmagnsbíl og allt heila klabbið.

187
00:17:57,000 --> 00:17:58,840
Vorum að spá í að eignast börn.

188
00:17:58,920 --> 00:18:00,480
Það er ekkert annað.

189
00:18:02,320 --> 00:18:03,640
Já.

190
00:18:06,360 --> 00:18:09,680
Hún varð ástfangin
af einkaþjálfaranum sínum.

191
00:18:10,240 --> 00:18:11,960
Andskotinn. Ég skil.

192
00:18:13,240 --> 00:18:17,000
Brasilíska þjálfaranum sínum.
Húðflúraður frá toppi til táar.

193
00:18:37,040 --> 00:18:39,000
- Fyrirgefðu.
- Ekkert mál.

194
00:18:42,800 --> 00:18:44,640
Ég er bara...

195
00:18:45,680 --> 00:18:48,680
Það eru húðflúrin, vöðvarnir,
að hann sé brasilískur...

196
00:18:48,760 --> 00:18:50,760
- Það er heilmikið að kyngja.
- Já.

197
00:18:52,120 --> 00:18:53,920
Það er nóg...

198
00:18:54,600 --> 00:18:57,920
Það er örugglega gott
að hugsa um eitthvað annað. Bara...

199
00:19:00,960 --> 00:19:04,200
- Þið eruð með sama hárlit.
- Þvílík tilviljun.

200
00:19:04,960 --> 00:19:08,240
- Komdu með klósettpappír.
- Já. Afsakaðu.

201
00:19:18,440 --> 00:19:20,840
- Hæ, Kaupmannahöfn.
- Hæ, Osló.

202
00:19:25,480 --> 00:19:26,800
Ég skrái okkur inn.

203
00:19:40,320 --> 00:19:42,760
- Halló aftur.
- Nei, hæ!

204
00:19:42,840 --> 00:19:44,960
Ég var að hugsa um föður þinn
og fæturna.

205
00:19:45,040 --> 00:19:47,760
- Virkilega? En gaman.
- Færðu honum þessa.

206
00:19:47,840 --> 00:19:51,320
Ég er kona með stóra fætur.
Það er hægt að stilla þá.

207
00:19:51,400 --> 00:19:54,200
- Nei, við getum ekki tekið þá.
- Jú, endilega.

208
00:19:54,280 --> 00:19:56,280
- Ég er með gönguskóna.
- Er það?

209
00:19:56,360 --> 00:19:58,960
- Allt í góðu lagi.
- Kærar þakkir.

210
00:19:59,040 --> 00:20:00,840
- Já.
- Takk fyrir.

211
00:20:04,200 --> 00:20:06,480
- Bless.
- Takk fyrir.

212
00:20:06,560 --> 00:20:07,880
Já, bless.

213
00:20:12,200 --> 00:20:13,640
- Það var laust.
- Frábært.

214
00:20:13,720 --> 00:20:16,400
Sjáðu. Mirna gaf þér sandalana sína.

215
00:20:17,320 --> 00:20:18,640
Fullkomið.

216
00:20:18,720 --> 00:20:21,040
Mamma þín hataði menn
í sokkum og sandölum.

217
00:20:24,640 --> 00:20:27,240
Já, en hún er ekki hér...

218
00:20:31,080 --> 00:20:32,480
Taktu þá bara.

219
00:20:35,840 --> 00:20:37,160
Jæja þá.

220
00:20:41,440 --> 00:20:43,840
"Takk, Mirna og Regitze."
"Það var ekkert."

221
00:20:46,480 --> 00:20:48,640
- Sæl.
- Sæll.

222
00:20:49,480 --> 00:20:54,040
Við tölum auðvitað eitthvað saman...

223
00:20:55,160 --> 00:20:58,800
En talið þið um alvöru mál...

224
00:21:02,160 --> 00:21:05,480
Ég er virkilega að reyna.
Það er bara svo...

225
00:21:06,400 --> 00:21:09,400
Ég veit ekki hvort ég vilji segja
að ég sé að verða mamma.

226
00:21:10,760 --> 00:21:13,720
Ég myndi líka eiga erfitt með það
ef ég væri í þínum sporum.

227
00:21:14,960 --> 00:21:19,520
Brjóstin mín eru svo aum.

228
00:21:19,600 --> 00:21:23,640
Það er svo vont. Var það líka þannig
hjá þér fyrst?

229
00:21:23,720 --> 00:21:25,840
Viltu hætta að...

230
00:21:25,920 --> 00:21:29,840
Mads, viltu taka hann...
Nei! Bíddu aðeins.

231
00:21:29,920 --> 00:21:32,560
Ég er að verða vitlaus hérna.
Mads, viltu...

232
00:21:32,640 --> 00:21:34,440
Ég hringi til baka. Heyrðu!

233
00:21:46,160 --> 00:21:47,480
Þetta er mjög gott.

234
00:21:48,280 --> 00:21:51,280
Sjávarréttirnir hérna eru alveg
frábærir. Finnst þér ekki?

235
00:21:55,120 --> 00:21:57,480
Hvað fékkst þú að borða sem barn?

236
00:21:57,560 --> 00:21:59,200
Því spyrðu?

237
00:22:00,800 --> 00:22:02,840
Ég veit ekki... Ég...

238
00:22:03,960 --> 00:22:07,240
Ég man það bara ekki.
Ég man lítið eftir ömmu.

239
00:22:07,320 --> 00:22:09,560
Það er lítið af skelfisk
í þessari súpu.

240
00:22:10,240 --> 00:22:12,840
Ég man samt eftir afa.

241
00:22:13,400 --> 00:22:16,760
Lykt af pípu og djúpri röddu
sem hræddi mig alltaf.

242
00:22:21,800 --> 00:22:23,640
Var hann málglaður?

243
00:22:25,160 --> 00:22:27,040
- Afi?
- Já.

244
00:22:27,120 --> 00:22:29,560
Var gott samband á milli ykkar?

245
00:22:30,160 --> 00:22:35,040
Ég held að hrokafullur asni
myndi lýsa honum best.

246
00:22:36,360 --> 00:22:39,080
- En fyrir utan það?
- Ég vil ekki tala um það.

247
00:23:42,640 --> 00:23:43,960
Daginn, Kaupmannahöfn.

248
00:23:44,880 --> 00:23:46,640
Góðan dag, Osló.

249
00:23:46,720 --> 00:23:49,000
Tuttugu kílómetra ganga
og svo smá jóga?

250
00:23:50,240 --> 00:23:52,680
Dýnurnar eru of harðar
fyrir bakið.

251
00:23:52,760 --> 00:23:54,080
Já.

252
00:24:09,120 --> 00:24:11,600
Haltu typpinu í buxunum
á pílagrímsleiðinni.

253
00:24:11,680 --> 00:24:14,360
- Ha?
- Þú ert að góna á dóttur mína.

254
00:24:14,440 --> 00:24:17,440
Hún ákvað að gera þetta
fyrir framan mig. Ég var hér.

255
00:24:18,160 --> 00:24:20,960
Fólk er að leita að þekkingu
og visku hérna.

256
00:24:21,040 --> 00:24:25,200
Hvað ertu að gera? Hann er ekkert
að skipta sér af mér.

257
00:24:25,280 --> 00:24:28,000
Þú ert að sperra þig
og stunda austurlensk trúarbrögð

258
00:24:28,080 --> 00:24:30,600
þar sem kristnir pílagrímar
hafa áður gengið.

259
00:24:30,680 --> 00:24:32,600
Slappaðu af.
Ég er bara að teygja á.

260
00:24:36,080 --> 00:24:38,080
Jóga er ekki trúarbrögð.

261
00:25:25,680 --> 00:25:27,400
Þið eruð á góðum hraða í dag.

262
00:25:27,480 --> 00:25:29,480
- Ó, já.
- Það veitir kannski á gott.

263
00:25:31,080 --> 00:25:33,760
Sandalarnir eru fullkomnir.
Kærar þakkir.

264
00:25:33,840 --> 00:25:36,480
Er það ekki, pabbi?

265
00:25:38,320 --> 00:25:40,080
- Takk.
- Viljið þið ganga með mér?

266
00:25:41,400 --> 00:25:43,120
- Það væri...
- Ómögulega, takk.

267
00:25:47,320 --> 00:25:50,320
Einhvern annan dag þá.
Buen Camino.

268
00:25:50,400 --> 00:25:51,720
Takk fyrir.

269
00:25:57,120 --> 00:25:58,800
Af hverju viltu ekki ganga saman?

270
00:25:58,880 --> 00:26:01,520
Ég er hér til að heiðra
hinstu ósk móður þinnar.

271
00:26:02,080 --> 00:26:05,840
Ekki til að nudda öxlum
við einhvern ástsjúkan Stórfót

272
00:26:05,920 --> 00:26:08,200
sem lítur á þetta sem skemmtiferð.

273
00:26:08,280 --> 00:26:11,360
DAGUR 4

274
00:26:11,440 --> 00:26:14,160
145 KM EFTIR

275
00:26:30,080 --> 00:26:34,560
Cruz de Ferro. Járnkrossinn.
Hæsti punktur leiðarinnar.

276
00:26:34,640 --> 00:26:39,200
Þetta er mjög mikilvægur staður.
Þú getur tekið steininn upp núna.

277
00:26:40,520 --> 00:26:42,040
Steininn?

278
00:26:42,120 --> 00:26:44,520
Ég sendi þér skilaboð
um að koma með stein.

279
00:26:44,600 --> 00:26:47,480
Ég... Ég hélt að þú værir
að grínast.

280
00:26:48,200 --> 00:26:49,800
- Brandari?
- En...

281
00:26:50,640 --> 00:26:52,240
Ég náði því ekki.

282
00:27:05,480 --> 00:27:10,120
Steinninn táknar byrðina
sem þú vilt losa þig við.

283
00:27:10,200 --> 00:27:16,000
Svo þegar þú skilur steininn eftir,
segir þú skilið við sorgina.

284
00:27:34,480 --> 00:27:36,640
Virkar sennilega bara
ef þú ert trúaður.

285
00:27:41,560 --> 00:27:43,920
Það er engin tilviljun
að þú sért hér án steins.

286
00:27:44,520 --> 00:27:47,320
- Ha?
- Þú óttast stórar tilfinningar.

287
00:27:47,400 --> 00:27:49,600
Ég skildi ekki textaskilaboðin.

288
00:28:54,000 --> 00:28:57,120
"Vötnin undir himninum
safnist saman í einn stað

289
00:28:58,080 --> 00:29:00,680
og þurrlendið komi í ljós.

290
00:29:03,560 --> 00:29:05,000
Og Guð sá að það var gott."

291
00:29:12,800 --> 00:29:16,360
Úr sköpunarsögunni. Þetta sagði
móðir þín þegar hún sá

292
00:29:16,440 --> 00:29:19,120
fallegt útsýni eins og þetta.
Dal sem þennan.

293
00:29:23,600 --> 00:29:28,960
Veistu hver eftirlætissagan mín
í Biblíunni var?

294
00:29:29,040 --> 00:29:31,960
Þessi um það...
þegar Jesús fæddist.

295
00:29:34,440 --> 00:29:36,160
- Jólaguðspjallið?
- Já.

296
00:29:38,000 --> 00:29:41,400
Mamma og pabbi heima
og margir gestir í heimsókn.

297
00:29:41,480 --> 00:29:43,680
Mér fannst það hljóma mjög vel.

298
00:29:44,400 --> 00:29:47,440
Dálítið smáborgaraleg túlkun
á Nýja testamentinu.

299
00:29:47,520 --> 00:29:49,760
Kannski. Það kann að vera.

300
00:29:52,520 --> 00:29:54,320
Ég öfundaði Jesú.

301
00:29:57,200 --> 00:30:02,000
Ímyndaðu þér að búa í hlöðu
með báðum foreldrum þínum og dýrum.

302
00:30:02,760 --> 00:30:05,760
Þú hefðir ekki þolað við
í tvær mínútur í svona hlöðu.

303
00:30:10,160 --> 00:30:12,000
- Vamos!
- Slappaðu af!

304
00:30:12,080 --> 00:30:14,760
Hunskastu burt! Burt! Núna!

305
00:30:14,840 --> 00:30:16,680
- Hvað ertu að gera?
- Vamos!

306
00:30:18,000 --> 00:30:21,160
- Hvað ertu eiginlega að gera?
- Hann er með kláðamaur og flær.

307
00:30:23,040 --> 00:30:24,920
Hvað ef ég myndi
kasta steinum í þig?

308
00:30:27,320 --> 00:30:28,640
Hvað?

309
00:30:29,760 --> 00:30:32,320
Þú getur ekki kastað neinu í neinn.

310
00:30:32,880 --> 00:30:36,800
- Jú, víst.
- Þú óttast hvers kyns ágreining.

311
00:30:37,560 --> 00:30:40,160
Hvað ertu að segja?
Ég óttast ekki...

312
00:30:40,240 --> 00:30:44,000
Þú þolir ekki mótvind.
Þú ferð frekar aðra leið.

313
00:30:46,800 --> 00:30:48,280
Hvað áttu við með því?

314
00:30:49,080 --> 00:30:51,160
- Ha?
- Þú gefst alltaf upp á miðri leið.

315
00:30:51,880 --> 00:30:56,400
Dýralæknanámið, tennisinn,
kokkurinn og hvað eina.

316
00:30:58,800 --> 00:31:04,120
Ég réð ekki við dýralæknaskólann.
Ég er lesblind. Gleymdirðu því?

317
00:31:04,200 --> 00:31:07,560
Já, eða kannski ertu bara
ekkert sérstaklega þrautseig.

318
00:31:07,640 --> 00:31:11,560
Eins og matreiðslufyrirtækið og fína
veisluþjónustan sem þú stofnaðir.

319
00:31:13,840 --> 00:31:15,280
Manstu eftir kórónuveirunni?

320
00:31:15,360 --> 00:31:18,360
Það er ekki mér að kenna
að öllu var skyndilega aflýst.

321
00:31:25,200 --> 00:31:28,320
Þegar lífið er erfitt og óréttlátt
hefur þú tvo möguleika.

322
00:31:28,400 --> 00:31:30,760
- Þú getur annaðhvort hlaupið...
- Hættu þessu!

323
00:31:31,280 --> 00:31:35,280
- Eða staðið keik.
- Hættu þessu. Þetta er vont! Hættu.

324
00:31:35,360 --> 00:31:40,200
- Það má ekkert vera vont.
- Hættu. Þú ert svo pirrandi.

325
00:31:40,280 --> 00:31:42,480
Viltu hlaupa
eða standa keik...

326
00:31:43,120 --> 00:31:45,880
- Hættu þessu!
- Ég tala um það sem máli skiptir.

327
00:31:45,960 --> 00:31:49,240
- Ha? Stóru hlutina.
- Þú ert svo...

328
00:31:52,600 --> 00:31:53,920
Sælir!

329
00:31:54,880 --> 00:31:56,360
- Sæl.
- Hæ!

330
00:31:56,440 --> 00:31:57,760
Buen Camino.

331
00:32:12,680 --> 00:32:15,560
Komdu. Höldum áfram.

332
00:32:24,600 --> 00:32:26,200
- Hæ!
- Hæ.

333
00:32:27,120 --> 00:32:30,040
- Hvernig gengur?
- Mjög illa!

334
00:32:30,120 --> 00:32:32,480
Ég vil fara heim.
Ég ætla ekki að klára þetta.

335
00:32:35,640 --> 00:32:39,000
- Svo hvað ætlarðu...
- Hvað?

336
00:32:42,160 --> 00:32:44,600
Halló? Hvað ertu að segja?

337
00:32:44,680 --> 00:32:47,760
- Hvað sagðirðu?
- Farðu fyrst að dómkirkjunni.

338
00:32:47,840 --> 00:32:49,160
Og kveiktu á kerti.

339
00:32:50,880 --> 00:32:52,480
- Já.
- Já.

340
00:33:00,480 --> 00:33:03,400
DAGUR 6

341
00:33:03,480 --> 00:33:06,760
118 KM EFTIR

342
00:33:14,840 --> 00:33:18,760
- Viltu mjólk?
- Já, en ég vil ferska mjólk.

343
00:33:20,040 --> 00:33:23,800
Leche fresco eða eitthvað álíka.

344
00:33:23,880 --> 00:33:27,400
Auðvitað er hún fersk. Volg mjólk.

345
00:33:27,480 --> 00:33:30,280
Nei. Ferska...

346
00:33:32,360 --> 00:33:36,200
Þessi mjólk endist að eilífu.
Ég vil ferska... beint úr...

347
00:33:36,280 --> 00:33:38,840
- Ferska.
- Þetta er kaffi. Slappaðu af.

348
00:33:38,920 --> 00:33:41,640
Því er þessi drykkur svona vondur
í upprunalandi sínu?

349
00:33:41,720 --> 00:33:44,720
- Caliente. Heitt.
- Jæja þá.

350
00:33:47,480 --> 00:33:48,880
Takk fyrir.

351
00:33:48,960 --> 00:33:52,800
Mjólk með langt geymsluþol.
Hún hefur eftirbragð.

352
00:33:53,640 --> 00:33:57,720
Heyrðu nú, mamma þín gerði hræðilega
vont kaffi. Alveg svakalega vont.

353
00:33:58,480 --> 00:34:02,880
Notaði volgt vatn og of fáar baunir.
En ég kvartaði ekki. Nú?

354
00:34:02,960 --> 00:34:07,520
Því þetta snýst aldrei um kaffið
heldur þann sem þú drekkur það með.

355
00:34:08,240 --> 00:34:10,400
Ég var svo heppinn
að drekka það með henni.

356
00:34:10,480 --> 00:34:13,720
Getum við sleppt því
að tala um mömmu í hálftíma?

357
00:34:13,800 --> 00:34:15,120
Bara hálftíma.

358
00:34:29,440 --> 00:34:31,200
Hvað með þig og ástina?

359
00:34:32,520 --> 00:34:34,600
Er enn enginn í lífi þínu?

360
00:34:36,320 --> 00:34:38,680
Það er fullt af fólki í lífi mínu.

361
00:34:42,080 --> 00:34:46,640
Ég á mjög nána vinkonu
sem heitir Lisa.

362
00:34:46,720 --> 00:34:49,880
En þú hefur engan sem elskar þig
og engan til að elska?

363
00:34:52,840 --> 00:34:56,600
Ástin krefst hugrekkis, Regitze.
Það er allt og sumt.

364
00:34:56,680 --> 00:35:02,320
Þú þarft bara að þora
að vera viðkvæm og varnarlaus.

365
00:35:03,280 --> 00:35:06,280
- Skortir þig hugrekki?
- Ég vil ekki ræða þetta.

366
00:35:07,520 --> 00:35:10,480
Ég vil ekki ræða ástarlíf mitt
við föður minn. Það er...

367
00:35:12,520 --> 00:35:14,760
Ég hef vini mína til þess.

368
00:35:19,800 --> 00:35:22,160
Og vinir eru líka ást.

369
00:35:27,960 --> 00:35:32,080
Þú ert ekkert sérlega fær í að deila
því sem er þér innanbrjósts.

370
00:35:33,680 --> 00:35:35,960
Þetta er stundum dálítið
eins og fyrirlestur.

371
00:35:44,720 --> 00:35:46,040
Já.

372
00:35:47,120 --> 00:35:50,440
Við þurfum ekki að ræða þetta.

373
00:36:02,320 --> 00:36:03,640
Pabbi?

374
00:36:05,480 --> 00:36:06,800
Hæ.

375
00:36:08,920 --> 00:36:10,800
- Hvað ertu að gera?
- Hvað gerir hann?

376
00:36:10,880 --> 00:36:12,720
- Pabbi?
- Hvað er hann að gera?

377
00:36:12,800 --> 00:36:14,480
Heyrðu mig.

378
00:36:14,560 --> 00:36:17,000
- Hvað ertu að gera, pabbi?
- Er hann sykursjúkur?

379
00:36:17,680 --> 00:36:19,480
- Hvað er þetta?
- Er hann sykursjúkur?

380
00:36:19,560 --> 00:36:23,560
- Ertu með sykursýki?
- Pabbi? Horfðu á mig.

381
00:36:25,760 --> 00:36:27,560
- Nei!
- Vaknaðu!

382
00:36:27,640 --> 00:36:30,640
- Hvað ertu að gera?
- Hann er með blóðsykurfall.

383
00:36:30,720 --> 00:36:34,080
- Ofbeldi er aldrei lausnin.
- Pabbi!

384
00:36:34,160 --> 00:36:36,200
Hvert ertu að fara?
Hlustaðu á mig.

385
00:36:36,280 --> 00:36:39,280
Heyrðu mig nú.
Hann er augljóslega með sykursýki.

386
00:36:39,360 --> 00:36:42,960
- Þú hlýtur að vita það sem dóttir.
- Ertu með kex eða djús?

387
00:36:43,040 --> 00:36:45,680
- Hann þarf sykur strax.
- Hann er ekki sykursjúkur.

388
00:36:45,760 --> 00:36:47,840
- Hann...
- Ég sæki meiri djús.

389
00:36:47,920 --> 00:36:51,400
Hann þarf sykur. Núna!
Annars endar þetta illa.

390
00:36:51,480 --> 00:36:53,600
- Hinkraðu.
- Leyfðu okkur að sjá um þetta.

391
00:36:53,680 --> 00:36:56,360
- Ég er að koma.
- Við sjáum um þetta. Vertu róleg.

392
00:37:10,320 --> 00:37:13,600
- Það er mikilvægt að hann fái sykur.
- Já.

393
00:37:13,680 --> 00:37:15,960
- Og súkkulaði eða eitthvað.
- Pabbi?

394
00:37:16,040 --> 00:37:18,280
- Haltu þessu þarna.
- Drekktu.

395
00:37:18,360 --> 00:37:21,360
Það má ekki bara æða af stað
án þess að vera með eitthvað.

396
00:37:26,480 --> 00:37:27,800
Farðu með hann í skuggann.

397
00:37:27,880 --> 00:37:29,200
Er allt í lagi?

398
00:37:30,880 --> 00:37:33,280
Ertu með sykursýki, pabbi? Ha?

399
00:37:34,320 --> 00:37:35,640
Já.

400
00:37:39,200 --> 00:37:41,920
En þér fannst ég ekki þurfa
að vita það? Ha?

401
00:37:43,680 --> 00:37:46,640
- Það þarf nú ekkert að auglýsa það.
- Nei...

402
00:37:46,720 --> 00:37:49,760
Sykursýki gamalmennis.
Ekki beint heillandi.

403
00:37:49,840 --> 00:37:54,200
En við verðum að passa
að þú borðir og drekkir.

404
00:37:54,720 --> 00:37:58,200
- Og að þú takir insúlínið þitt.
- Já, en...

405
00:37:58,280 --> 00:38:00,560
- Þetta er ekkert grín.
- Þetta er tegund tvö...

406
00:38:00,640 --> 00:38:04,000
Ég hef ekki þurft insúlín
hingað til.

407
00:38:04,840 --> 00:38:09,480
Ég er fullorðinn. Ég get séð um
mitt eigið kex og djús.

408
00:38:09,560 --> 00:38:11,600
Augljóslega ekki.
Svíarnir gerðu það!

409
00:38:19,560 --> 00:38:22,200
Maður segir fjölskyldu sinni
frá svona hlutum.

410
00:38:26,120 --> 00:38:29,760
Rétt eins og ég hefði viljað vita
þegar mamma veiktist fyrst.

411
00:38:34,480 --> 00:38:38,320
- Við vildum ekki valda þér áhyggjum.
- Þriðja stigs beinkrabbamein!

412
00:38:40,120 --> 00:38:42,440
Meira en næg ástæða
til að valda mér áhyggjum.

413
00:38:44,040 --> 00:38:45,360
Já.

414
00:38:48,360 --> 00:38:51,880
Það er erfitt
að segja suma hluti.

415
00:39:42,080 --> 00:39:43,800
Hæ.

416
00:39:43,880 --> 00:39:49,480
Klaustur San Julián de Samos.
Brann árið 1558

417
00:39:49,560 --> 00:39:51,320
en var endurreist.

418
00:39:51,400 --> 00:39:54,880
Staður sem hefur geysimikla
táknræna merkingu á göngunni.

419
00:39:54,960 --> 00:39:57,840
- Þú þarft að borða og drekka.
- Það er gotneskur, barokk...

420
00:39:57,920 --> 00:39:59,760
og endurreisnarstíll
í arkitektúrnum.

421
00:39:59,840 --> 00:40:02,880
Sykursýkin? Þú þarft að borða
og drekka eitthvað.

422
00:40:02,960 --> 00:40:05,200
Ég er að reyna að opna umhverfið.

423
00:40:05,280 --> 00:40:09,240
Gefa klaustrinu sögulegan hljómgrunn
og merkingu.

424
00:40:09,320 --> 00:40:11,520
Á meðan þú rausar um kex.

425
00:40:13,120 --> 00:40:15,080
Jæja. Ég er bara að reyna að...

426
00:40:15,600 --> 00:40:18,680
Við mamma þín undirbjuggum okkur
alltaf vel fyrir ferðalög.

427
00:40:19,520 --> 00:40:22,320
Við vissum alltaf hvað myndi verða
á vegi okkar.

428
00:40:51,440 --> 00:40:54,320
Hæ, elskan.
Heyrðu, það hittir illa á.

429
00:40:56,200 --> 00:40:59,920
Lisa. Þetta er ekki góður tími.

430
00:41:00,000 --> 00:41:03,640
- Vinsamlegast. Enga síma.
- Það er munkur að skamma mig.

431
00:41:03,720 --> 00:41:05,440
Ég hringi í þig á eftir. Bless.

432
00:41:09,160 --> 00:41:12,720
- Af hverju svaraðir þú?
- Rólegur. Ég skellti á.

433
00:41:13,360 --> 00:41:17,440
Þetta er klaustur.
Ekki hipsterakaffihús.

434
00:41:17,520 --> 00:41:19,480
Señor, lækkaðu róminn.

435
00:41:19,560 --> 00:41:22,160
Þetta er klaustur.
Fólk lifir hér í þögn.

436
00:41:23,080 --> 00:41:24,480
Sýnið smá virðingu.

437
00:41:38,200 --> 00:41:42,840
Við göngum og göngum og göngum.

438
00:41:43,640 --> 00:41:44,960
Og?

439
00:41:45,920 --> 00:41:47,240
Ja...

440
00:41:49,840 --> 00:41:51,640
Við náum bara ekki saman.

441
00:42:00,360 --> 00:42:01,680
Hvað með Hollendinginn?

442
00:42:02,640 --> 00:42:05,640
Ég held að hann vilji ekki vita
að hann sé að verða pabbi.

443
00:42:11,720 --> 00:42:14,080
Hvernig eru svo blöðrurnar?

444
00:42:15,760 --> 00:42:19,200
- Sandalarnir hjálpuðu.
- Ó, gott.

445
00:42:44,040 --> 00:42:46,800
Pílagrímsferð er mynstur,
hátíðleg hreyfing,

446
00:42:46,880 --> 00:42:50,400
sem snýst um vegalengdina,
gönguna og hegðun pílagrímsins.

447
00:42:50,480 --> 00:42:54,000
Þetta er allt fyrir fram ákveðið
en ekki gert með frjálsri aðferð.

448
00:42:54,080 --> 00:42:56,680
- Mynstrið er grunnurinn.
- Það er helgiathöfn.

449
00:42:56,760 --> 00:43:01,680
Löng helgiathöfn, sem veitir
pílagrímnum trúarlega endurnýjun

450
00:43:01,760 --> 00:43:03,080
og breytt hugarfar.

451
00:43:03,160 --> 00:43:06,600
- Manndómsvígsla.
- Sem felur í sér aðskilnað.

452
00:43:06,680 --> 00:43:09,960
Þetta er millistig umbreytinga,
goðsagnakennd för.

453
00:43:10,040 --> 00:43:13,560
Þeir endurtaka það sem goðsagna-
persónur hafa áður kennt þeim.

454
00:43:13,640 --> 00:43:16,040
Endurtekning, endurtekning
og aftur endurtekning,

455
00:43:16,120 --> 00:43:18,680
og þá myndast ákveðið mynstur.

456
00:43:18,760 --> 00:43:22,480
Og á því augnabliki býður mynstrið
upp á frekari endurtekningu...

457
00:43:22,560 --> 00:43:27,840
Nákvæmlega. Þú ættir að ganga
Via Francigena einhvern tímann.

458
00:43:27,920 --> 00:43:31,160
- Falleg pílagrímsför.
- Kannski geri ég það.

459
00:43:31,240 --> 00:43:33,760
- Gott og vel. Buen Camino.
- Buen Camino.

460
00:43:33,840 --> 00:43:35,160
Bæ.

461
00:43:38,080 --> 00:43:39,640
Vertu sæll.

462
00:43:39,720 --> 00:43:42,160
- Þú ættir að finna einhvern svona.
- Ókei.

463
00:43:43,240 --> 00:43:45,800
- Og deyja úr leiðindum?
- Leiðindum?

464
00:43:46,840 --> 00:43:48,960
Í félagsskap slíks atgervismanns?

465
00:43:52,400 --> 00:43:53,720
Þú ert falleg.

466
00:43:55,120 --> 00:43:57,400
- Ég þarf að pissa á korters fresti.
- Í alvöru?

467
00:43:57,480 --> 00:43:58,800
- Já.
- Ó, nei.

468
00:43:58,880 --> 00:44:01,200
Fyrir utan það er dásamlegt
að vera ólétt.

469
00:44:01,280 --> 00:44:05,080
- Er faðirinn hér?
- Hann er drullusokkur.

470
00:44:06,120 --> 00:44:08,560
Ég geng til að finna styrk
til að fara frá honum.

471
00:44:13,240 --> 00:44:14,640
Fallegt veður.

472
00:44:17,240 --> 00:44:19,320
Mér er eiginlega sama um veðrið.

473
00:44:20,000 --> 00:44:22,440
Ég er hér til að heiðra minningu
konu minnar.

474
00:44:26,680 --> 00:44:29,880
- Ég er hér í þriðja sinn.
- Þriðja sinn?

475
00:44:32,200 --> 00:44:34,200
Fyrst gekk ég Jakobsveginn

476
00:44:34,960 --> 00:44:37,360
vegna þess að eiginmaður minn
lést í bílslysi.

477
00:44:38,200 --> 00:44:39,720
Fimmtíu og tveggja ára gamall.

478
00:44:40,280 --> 00:44:44,520
Í annað sinn sem ég gekk
var ég með brjóstakrabbamein.

479
00:44:46,040 --> 00:44:49,600
Nú geng ég vegna þess að besta
vinkona mín dó úr hvítblæði í fyrra.

480
00:44:52,800 --> 00:44:54,720
Ég sakna hennar. Mjög mikið.

481
00:44:58,240 --> 00:45:01,240
Það gerir mér gott að ganga,
skilurðu?

482
00:45:01,960 --> 00:45:03,560
Færast fram á við.

483
00:45:05,680 --> 00:45:07,800
Og ég held ég hafi sigrast
á krabbameininu.

484
00:45:07,880 --> 00:45:09,200
Ég lofa engu, en...

485
00:45:10,160 --> 00:45:11,560
Ég hef von.

486
00:45:16,760 --> 00:45:19,160
- Ég þarf að hvíla mig.
- Já, auðvitað.

487
00:45:21,880 --> 00:45:23,200
- Bless.
- Bæ bæ.

488
00:45:41,360 --> 00:45:42,840
- Sjáumst.
- Já, bless.

489
00:45:45,240 --> 00:45:46,560
Er allt í lagi?

490
00:45:58,200 --> 00:45:59,520
Viltu fá smá djús og kex?

491
00:45:59,600 --> 00:46:02,000
Nei, ég vil bara sitja hér um stund.

492
00:46:03,080 --> 00:46:05,360
- Ég held að það sé betra...
- Ég er ekki barn.

493
00:46:15,960 --> 00:46:17,680
Ég er bara að reyna að hjálpa þér.

494
00:46:33,480 --> 00:46:35,120
Þú virðist þurfa þetta.

495
00:46:35,840 --> 00:46:38,080
- Ó, takk.
- Velkomin til La Senda.

496
00:46:38,160 --> 00:46:39,480
Takk.

497
00:46:57,120 --> 00:47:00,040
Halló? Señor? Hæ.

498
00:47:00,120 --> 00:47:03,000
Þetta kaffi er mjög gott.

499
00:47:03,080 --> 00:47:05,320
Svona lögum við kaffi
á Spáni.

500
00:47:05,400 --> 00:47:08,640
Nei, það er ekki satt. Trúðu mér.

501
00:47:08,720 --> 00:47:12,880
Svona er ekki kaffið
á fjandans Jakobsveginum.

502
00:47:14,640 --> 00:47:16,400
Það er trúað fólk hérna.

503
00:47:16,480 --> 00:47:20,240
- Slæm orð gætu móðgað einhvern.
- Slæm orð? Já, auðvitað.

504
00:47:20,800 --> 00:47:24,920
Afsakaðu. Ég er ekki...
Ég er ekki vön að...

505
00:47:28,840 --> 00:47:31,320
Signora... mi scusi...

506
00:47:31,400 --> 00:47:33,880
Nei. Þetta er ítalska.

507
00:47:33,960 --> 00:47:36,120
Alveg rétt...

508
00:47:36,200 --> 00:47:38,160
Móðir mín
skilur ekki ensku.

509
00:47:42,760 --> 00:47:44,840
Allavega... Takk fyrir.

510
00:48:21,400 --> 00:48:22,720
Spilarðu?

511
00:48:23,480 --> 00:48:26,320
- Já, er það í lagi?
- Já, það er í lagi.

512
00:48:28,240 --> 00:48:29,560
Viltu spila?

513
00:48:30,320 --> 00:48:31,920
Er það? Ókei, því ekki?

514
00:48:32,800 --> 00:48:34,120
Gott og vel.

515
00:48:36,680 --> 00:48:38,000
Eitt núll.

516
00:48:42,480 --> 00:48:43,800
Fyrirgefðu.

517
00:48:49,560 --> 00:48:51,360
- Nei!
- Fyrsta skipti á Jakobsveginum?

518
00:48:52,560 --> 00:48:54,880
Já. Og...

519
00:48:56,280 --> 00:48:57,600
líklega það síðasta.

520
00:49:00,160 --> 00:49:04,920
Ég geng með föður mínum til
að þóknast móður minni. Það er...

521
00:49:05,000 --> 00:49:08,160
Það er dálítið... Það er flókið.

522
00:49:10,920 --> 00:49:15,960
- Leik lokið hjá mér. Þú vinnur.
- Nú? Ókei. Vinn ég? Allt í lagi.

523
00:49:16,040 --> 00:49:18,480
Ég þarf að hjálpa móður minni
að elda kvöldmat.

524
00:49:18,560 --> 00:49:20,240
- Handa mér?
- Handa þér og...

525
00:49:20,320 --> 00:49:22,440
- Og fleira fólki auðvitað.
- Tuttugu öðrum.

526
00:49:22,520 --> 00:49:25,480
- En ég vinn.
- Þú vinnur.

527
00:49:25,560 --> 00:49:28,120
- Kannski spilum við á eftir.
- Bless.

528
00:49:33,800 --> 00:49:35,120
Hæ.

529
00:49:40,720 --> 00:49:42,040
Borðtennis?

530
00:49:45,280 --> 00:49:46,600
Þau gera gott kaffi.

531
00:49:55,880 --> 00:49:57,880
Þetta er æðislegt. Að eignast vini.

532
00:50:17,080 --> 00:50:19,400
Afsakið.
Viltu rétta mér smjörið?

533
00:50:22,880 --> 00:50:24,200
Hæ.

534
00:50:26,960 --> 00:50:28,280
Var það sárt?

535
00:50:31,120 --> 00:50:33,800
- Var hvað sárt?
- Að tala við Mirnu í dag.

536
00:50:37,440 --> 00:50:38,840
Þú gætir prófað aftur.

537
00:50:41,440 --> 00:50:43,840
Ef þú þarft að tala við einhvern
skaltu gera það.

538
00:50:45,840 --> 00:50:47,400
Ég er hér vegna móður þinnar.

539
00:50:51,720 --> 00:50:53,040
Já, hvað annað?

540
00:50:56,200 --> 00:50:57,520
Hvað annað?

541
00:50:59,520 --> 00:51:00,960
Hvaða hæðnistónn er þetta?

542
00:51:03,040 --> 00:51:04,360
Þetta er ekki hæðnistónn.

543
00:51:15,280 --> 00:51:19,800
Þetta hefur bara alltaf snúist...
um ykkur mömmu.

544
00:51:21,200 --> 00:51:22,880
Mömmu og þig. Þig og mömmu.

545
00:51:22,960 --> 00:51:25,080
Ég hef ekki hugmynd um
hvað þú ert að tala.

546
00:51:29,760 --> 00:51:31,760
Þetta hefur alltaf snúist um
ykkur tvö.

547
00:51:34,000 --> 00:51:37,000
Um það að vera klár
og hvað þið voruð að lesa...

548
00:51:39,200 --> 00:51:41,520
Endalausar rökræður um trú og...

549
00:51:42,400 --> 00:51:44,640
Þú veist, tilveruna
og fræðilega hluti.

550
00:51:44,720 --> 00:51:47,240
Erum við nú á móti bókmenntum
og hinu andlega?

551
00:51:48,040 --> 00:51:50,600
Það hefur bara ekki alltaf verið...

552
00:51:53,280 --> 00:51:57,320
Það hefur tekið á að umgangast ykkur
en geta ekki lesið.

553
00:51:58,680 --> 00:52:00,400
Þú áttir þín eigin áhugamál.

554
00:52:01,640 --> 00:52:03,040
Þú varst góð í tennis.

555
00:52:05,000 --> 00:52:08,160
"Guð temprar vindinn
til hins rúna lambs."

556
00:52:12,320 --> 00:52:16,240
Ég fékk nú ekki mörg stig
fyrir tennisinn heimafyrir.

557
00:52:19,000 --> 00:52:21,360
Að vera fjölskylda er ekki keppni.

558
00:52:24,080 --> 00:52:26,800
Það voru allir ávallt velkomnir
við okkar borð.

559
00:52:26,880 --> 00:52:28,920
Þú komst aldrei á leik hjá mér.

560
00:52:31,480 --> 00:52:35,560
Mamma hafði alltaf prédikun
að skrifa,

561
00:52:36,200 --> 00:52:37,920
og sorgarhóp að hitta...

562
00:52:40,440 --> 00:52:42,840
Þú hafðir alltaf ritgerðir
að leiðrétta.

563
00:52:45,040 --> 00:52:47,040
Vissir ekkert hversu góð
eða slæm ég var.

564
00:52:47,120 --> 00:52:48,440
Ég er ekki fyrir íþróttir.

565
00:52:48,520 --> 00:52:51,800
Hinir foreldrarnir komu ekki
fyrir íþróttina.

566
00:52:52,520 --> 00:52:54,320
Þau komu barnanna sinna vegna.

567
00:52:56,120 --> 00:52:59,720
Ef þú ætlar að væla yfir barnæsku
þinni skaltu sitja annars staðar.

568
00:54:00,880 --> 00:54:02,200
Velkomin.

569
00:54:11,040 --> 00:54:13,240
Áfengi og sykursýki tvö.

570
00:54:14,480 --> 00:54:15,800
Má það?

571
00:54:22,040 --> 00:54:25,440
Engar áhyggjur. Ég kem í friði.

572
00:54:26,760 --> 00:54:29,000
Kók, por favor.

573
00:54:29,080 --> 00:54:31,080
Viltu bjór? Una cerveza.

574
00:54:31,160 --> 00:54:32,600
- Nei.
- Handa henni.

575
00:54:35,440 --> 00:54:40,480
Kannski ættirðu að drekka þig fulla
og missa stjórnina.

576
00:54:41,520 --> 00:54:44,200
- Hætta að hugsa um álit annarra.
- Ég vil bara kók.

577
00:54:45,760 --> 00:54:47,080
Ókei?

578
00:54:48,320 --> 00:54:52,920
Mamma þín...
Það sauð stundum upp úr hjá okkur.

579
00:54:53,000 --> 00:54:56,080
Við ræddum málin og elskuðumst...

580
00:54:56,160 --> 00:54:57,760
Pabbi, þetta er nóg.

581
00:54:58,560 --> 00:55:03,880
Ég skil, ókei.
Ég skil að þú sért niðurdreginn...

582
00:55:03,960 --> 00:55:06,840
- Að það sé ekki...
- Nei! Ég er sárþjáður!

583
00:55:06,920 --> 00:55:10,560
Andskotinn hafi það!
Ég er sárþjáður hérna inni.

584
00:55:11,080 --> 00:55:14,080
Ég hef misst lífsvitni mitt,
sálufélaga minn.

585
00:55:14,160 --> 00:55:16,400
Maður er ekkert án ástar.

586
00:55:16,920 --> 00:55:18,600
Maður er einskis virði einn.

587
00:55:18,680 --> 00:55:20,880
Auðvitað ertu það
þótt þú sért einn.

588
00:55:20,960 --> 00:55:25,440
Hvað er maður?
Þegar enginn heyrir til þín?

589
00:55:26,080 --> 00:55:30,200
- Ha? Þegar enginn sér þig?
- En... Þú ert þú sjálfur.

590
00:55:30,280 --> 00:55:32,240
Þú ert þú sjálfur,
og það er eitthvað.

591
00:55:32,760 --> 00:55:36,040
- Ég hef það bara fínt ein.
- Hættu nú alveg.

592
00:55:36,120 --> 00:55:39,640
- Hvað áttu við með því?
- Þú ert ekki hamingjusöm, Regitze.

593
00:55:39,720 --> 00:55:42,880
- Hvaða asni sem er sér það.
- Þú veist ekkert um það.

594
00:55:43,680 --> 00:55:45,800
Þú hefur enga ást, elskan mín.

595
00:55:47,120 --> 00:55:49,320
"Ástin linar allar þrautir."

596
00:55:49,400 --> 00:55:52,960
Ég vil enn ekki ræða ástarlíf mitt
við pabba minn.

597
00:55:53,920 --> 00:55:57,400
Það er nú ekki mikið að tala um,
svo það skiptir engu.

598
00:56:00,520 --> 00:56:04,880
Ég skil,
þannig að nú sitjum við bara hér...

599
00:56:05,720 --> 00:56:10,040
Tveir ónytjungar? Erum við
einskis virði? Er það málið?

600
00:56:14,680 --> 00:56:17,680
- Móðir þín er með mér.
- Ég veit að hún er með þér.

601
00:56:17,760 --> 00:56:21,720
Þú berð hana í hjarta þínu.
En ég er hérna líka.

602
00:56:38,160 --> 00:56:39,880
Er þetta...

603
00:56:41,680 --> 00:56:43,280
Er þetta askan hennar?

604
00:56:44,200 --> 00:56:46,920
Í mittistöskunni þinni?

605
00:56:50,520 --> 00:56:54,080
Þú sagðir mér að mamma væri grafin
í duftgarðinum.

606
00:56:55,640 --> 00:57:01,040
- Þú laugst!
- Nei, en ég gat ekki sleppt takinu.

607
00:57:01,120 --> 00:57:03,840
Tilhugsunin um ösku Elisabeth
í myrkrinu...

608
00:57:03,920 --> 00:57:07,160
Þetta er alveg... Alveg hreint...

609
00:57:07,920 --> 00:57:09,560
Ég veit ekki hvað ég á að segja.

610
00:57:10,240 --> 00:57:12,320
- Þú veist ekki...
- Svona gerir maður ekki!

611
00:57:12,400 --> 00:57:17,200
Þú þekkir ekki sorg.
Þú þekkir ekki alvöru sorg.

612
00:57:17,280 --> 00:57:20,920
Þú veist ekkert um alvöru missi.
Hnífinn í hjartanu.

613
00:57:21,000 --> 00:57:23,800
Hver fer með ösku látinnar eiginkonu
sinnar á bar á Spáni

614
00:57:23,880 --> 00:57:25,280
og lýgur að dóttur sinni?

615
00:57:25,360 --> 00:57:30,640
Hana dreymdi um Jakobsveginn,
um að sjá dómkirkjuna.

616
00:57:30,720 --> 00:57:33,840
- Ég vil að hún sjái þetta!
- Hana dreymir ekki lengur!

617
00:57:34,360 --> 00:57:36,320
Hún getur hvorki séð
né upplifað neitt!

618
00:57:36,400 --> 00:57:39,720
Hún er dáin! Troddu því inn
í hausinn á þér!

619
00:57:40,240 --> 00:57:41,560
Nei!

620
00:57:43,880 --> 00:57:46,720
- Skiptu þér ekki af þessu.
- Hættu þessu.

621
00:57:48,520 --> 00:57:49,840
Nei!

622
00:57:49,920 --> 00:57:52,120
- Hættið þessu!
- Elisabeth!

623
00:57:52,200 --> 00:57:53,720
Hættið þessu!

624
00:57:54,720 --> 00:57:57,720
Hættið! Þetta er móðir mín.

625
00:57:57,800 --> 00:57:59,640
Þetta er móðir mín.

626
00:58:26,480 --> 00:58:27,800
Hún sprakk...

627
00:58:29,080 --> 00:58:30,960
Passaðu að pokinn sé vel lokaður.

628
00:58:38,000 --> 00:58:40,960
- Ég er farin heim.
- Nei, Regitze. Stansaðu.

629
00:58:41,040 --> 00:58:45,040
Stansaðu! Ég er ekki
með sjálfum mér. Er það nokkuð?

630
00:58:45,120 --> 00:58:47,280
Mér líður alveg hræðilega.

631
00:58:50,160 --> 00:58:51,560
Þú slóst mig.

632
00:58:52,880 --> 00:58:56,800
Fyrirgefðu. Ég er draugfullur.
Ég þoli illa áfengi.

633
00:58:56,880 --> 00:59:02,240
- Ég ætla samt heim.
- Nei, Regitze. Hættu nú. Stansaðu.

634
00:59:03,040 --> 00:59:07,480
- Snertu mig ekki.
- Hættu. Sláðu mig, fjandakornið.

635
00:59:07,560 --> 00:59:09,640
- Til að jafna þetta út.
- Það geri ég ekki.

636
00:59:09,720 --> 00:59:13,640
Láttu ekki svona.
Vertu ekki svona mikil dyramotta.

637
00:59:14,760 --> 00:59:18,320
- Hvað varstu að kalla mig?
- Svona nú, dyramotta. Gerðu það.

638
00:59:19,640 --> 00:59:21,040
Pabbi, þetta...

639
00:59:22,560 --> 00:59:23,960
Þetta er búið.

640
00:59:25,640 --> 00:59:30,360
Við erum ekki góð fyrir hvort annað.
Við erum...

641
00:59:31,440 --> 00:59:35,000
Við misskiljum hvort annað,
við særum hvort annað og við...

642
00:59:36,320 --> 00:59:37,760
Þú særir mig.

643
00:59:38,520 --> 00:59:41,480
Ég fer til Compostela og svo...

644
00:59:42,680 --> 00:59:44,160
flýg ég heim.

645
00:59:45,160 --> 00:59:48,040
Þú getur gengið þinn Jakobsveg.
Ókei?

646
00:59:48,720 --> 00:59:52,760
- Regitze.
- Þú hringir ekki í mig og öfugt.

647
00:59:54,240 --> 00:59:56,800
Bless, Jan. Buen Camino.

648
00:59:59,320 --> 01:00:00,640
Heyrðu mig nú.

649
01:00:01,520 --> 01:00:05,240
Það er eitt í viðbót
sem þú ættir að vita.

650
01:00:10,000 --> 01:00:11,560
Ég er ófrísk.

651
01:00:13,280 --> 01:00:14,600
Hvað þá?

652
01:00:16,320 --> 01:00:19,600
Og ég... er spennt.

653
01:00:23,240 --> 01:00:24,840
Ég held reyndar...

654
01:00:26,560 --> 01:00:28,680
Ég held að ég verði bara
nokkuð góð mamma.

655
01:00:50,040 --> 01:00:52,440
- Viltu ekki bíða til morguns?
- Nei, takk.

656
01:01:03,640 --> 01:01:06,520
Lisa hér. Skildu eftir skilaboð
og ég hringi til baka. Bæ!

657
01:01:07,840 --> 01:01:11,600
Þetta er ég. Ég er farin frá honum.
Lögð af stað.

658
01:01:12,600 --> 01:01:15,720
Ég vil ekki vera með honum.
Hann sló mig!

659
01:01:16,680 --> 01:01:18,880
Hann er helvítis asni.

660
01:01:20,280 --> 01:01:22,680
Ég vil bara fara heim núna.

661
01:02:12,080 --> 01:02:13,480
Halló?

662
01:02:14,960 --> 01:02:16,960
Halló? Hver er þetta?

663
01:02:34,440 --> 01:02:37,520
DAGUR 9

664
01:02:37,600 --> 01:02:40,640
36 KM EFTIR

665
01:02:54,800 --> 01:02:56,680
Buen Camino, Kaupmannahöfn!

666
01:02:58,680 --> 01:03:00,440
Ekki til í spjall í dag?

667
01:03:02,000 --> 01:03:05,480
- Viltu ganga saman í þögn?
- Ha?

668
01:03:06,120 --> 01:03:07,960
Viltu ganga saman í þögninni?

669
01:03:16,280 --> 01:03:17,720
Ertu að reyna við mig?

670
01:03:17,800 --> 01:03:19,560
Afsakaðu, hvað segirðu?

671
01:03:22,720 --> 01:03:27,640
- Ertu að reyna við mig á göngunni?
- Ég stakk bara upp á að ganga saman.

672
01:03:27,720 --> 01:03:30,840
Þar sem ykkur pabba þínum
kemur ekkert sérlega vel saman.

673
01:03:32,160 --> 01:03:37,480
Þetta er staður sem pílagrímar
hafa gengið um síðan á miðöldum.

674
01:03:39,280 --> 01:03:43,240
Ekki staður til að næla í dömur til
að halda á þér hita í svefnpokanum.

675
01:03:43,320 --> 01:03:44,760
- Einmitt.
- Ha?

676
01:03:47,080 --> 01:03:48,480
Ég er ófrísk.

677
01:03:49,560 --> 01:03:54,320
Heyrðirðu þetta?
Ha? Ég er ófrísk!

678
01:03:56,760 --> 01:03:58,480
Ég er engin lauslætisdrós!

679
01:03:59,840 --> 01:04:02,560
Sýndu smá virðingu, Noregur!

680
01:04:08,240 --> 01:04:09,560
Hvað?

681
01:04:18,000 --> 01:04:22,080
- Halló.
- Hæ. Ég þarf að fara til Compostela.

682
01:04:22,160 --> 01:04:26,160
- Ókei? Í leigubíl.
- Compostela. Í leigubíl?

683
01:04:26,680 --> 01:04:28,000
Núna strax.

684
01:04:28,080 --> 01:04:31,440
Já, en það er eitt vandamál.
Hér eru engir leigubílar.

685
01:04:32,520 --> 01:04:33,840
Ég skil.

686
01:04:33,920 --> 01:04:37,560
En kannski get ég hringt á leigubíl
frá Compostela fyrir þig?

687
01:04:38,080 --> 01:04:41,560
- Já, það væri frábært.
- Þrír tímar, tveir tímar...

688
01:04:42,160 --> 01:04:44,240
- Ég veit ekki.
- Eins fljótt og auðið er.

689
01:04:44,320 --> 01:04:46,600
Ég þarf að leita
að símanúmerinu.

690
01:05:03,600 --> 01:05:06,880
Regitze.
Ég hef leitað að þér út um allt.

691
01:05:06,960 --> 01:05:09,400
- Sæll.
- Halló.

692
01:05:11,080 --> 01:05:13,600
- Hvað ertu að gera hér?
- Faðir þinn.

693
01:05:14,400 --> 01:05:18,280
Hann...
Hann hegðaði sér undarlega í morgun.

694
01:05:18,920 --> 01:05:21,880
Síðan féll hann í yfirlið
og rak höfuðið í.

695
01:05:21,960 --> 01:05:24,080
- Kannski fékk hann heilahristing.
- Hvað þá?

696
01:05:24,160 --> 01:05:28,240
Læknirinn skoðaði hann.
Hann þarf hvíld.

697
01:05:29,360 --> 01:05:32,760
- Já.
- Mér fannst rétt að þú vissir það.

698
01:05:32,840 --> 01:05:38,040
Ég veit ekki hvort þú...
Viltu fara til baka og hitta hann?

699
01:05:40,840 --> 01:05:43,160
Nei, ég vil ekki fara til baka. Nei.

700
01:05:45,720 --> 01:05:47,640
Ég get það bara ekki.

701
01:06:02,600 --> 01:06:03,920
Heyrðu...

702
01:06:04,560 --> 01:06:06,760
Faðir minn var ekki góður maður.

703
01:06:08,760 --> 01:06:11,280
Við rifumst töluvert, við tveir.

704
01:06:12,120 --> 01:06:18,200
Um stjórnmál, siðferði, tónlist,
samfélagið, flóttafólk. Í raun allt.

705
01:06:20,600 --> 01:06:25,120
Nú er hann farinn
og ég sakna hans svo mikið.

706
01:06:27,200 --> 01:06:28,520
Alla daga.

707
01:06:29,920 --> 01:06:33,200
Allar sögurnar sem þig eigið saman.
Ég sagði stundum:

708
01:06:36,080 --> 01:06:38,560
"Manstu eftir fyndna hundinum
í Almeríu?"

709
01:06:38,640 --> 01:06:41,320
- Ha?
- Og svo hlógum við vegna þess að...

710
01:06:42,040 --> 01:06:44,800
við sáum eitt sinn
fyndinn hund í Almeríu.

711
01:06:47,080 --> 01:06:48,480
En núna...

712
01:06:49,640 --> 01:06:50,960
Ég...

713
01:06:52,000 --> 01:06:55,520
En... Það var aðeins
fyrir okkur tvo.

714
01:06:56,960 --> 01:06:59,800
Nú sit ég uppi með mynd
af þessum hundi í huga mér.

715
01:07:00,920 --> 01:07:02,240
Aleinn.

716
01:07:06,360 --> 01:07:08,360
Ég man ekki einu sinni...

717
01:07:10,360 --> 01:07:13,320
eina fyndna sögu um föður minn
í augnablikinu.

718
01:07:14,720 --> 01:07:16,320
Þú munt gera það.

719
01:07:46,320 --> 01:07:48,600
- Þakka þér fyrir.
- Sjálfsagt.

720
01:08:15,960 --> 01:08:17,280
Hæ, pabbi.

721
01:08:19,640 --> 01:08:21,800
- Hæ!
- Hæ.

722
01:08:27,800 --> 01:08:29,440
Svo þú ert ólétt.

723
01:08:31,360 --> 01:08:33,160
- Já.
- Það er stórkostlegt.

724
01:08:36,200 --> 01:08:37,520
Já.

725
01:08:43,240 --> 01:08:46,760
Það er komið stutt, svo...

726
01:08:49,480 --> 01:08:51,480
Ég er bara komin tíu vikur á leið.

727
01:08:53,240 --> 01:08:54,640
Svo...

728
01:08:56,320 --> 01:09:00,520
- Svo það er enn langt í þetta.
- Já.

729
01:09:03,120 --> 01:09:05,600
Hver er hann? Pabbinn?

730
01:09:07,000 --> 01:09:08,480
Það er enginn pabbi.

731
01:09:11,160 --> 01:09:12,600
Það er alltaf pabbi.

732
01:09:13,880 --> 01:09:15,400
Ekki í þessu tilfelli.

733
01:09:16,200 --> 01:09:17,760
- Nú?
- Já.

734
01:09:18,320 --> 01:09:20,520
Svo þú veist ekki
hver barnaði þig?

735
01:09:21,280 --> 01:09:24,280
Ég veit hvernig ég varð ólétt, en...

736
01:09:25,440 --> 01:09:27,440
Ég á engan kærasta.
Þetta var bara...

737
01:09:28,600 --> 01:09:32,280
Tja... Náungi úr...

738
01:09:32,880 --> 01:09:36,680
Hollendingur sem ég var að hitta
í stuttan tíma. Hann veit ekkert.

739
01:09:38,200 --> 01:09:42,160
- Þú gætir haft uppi á honum.
- Ég veit ekki. Það er...

740
01:09:43,720 --> 01:09:45,800
Hann á konu og tvö börn...

741
01:09:47,120 --> 01:09:48,960
Ég get það ekki.

742
01:09:50,600 --> 01:09:52,920
En þú getur ekki
haft barnið út af fyrir þig.

743
01:09:56,920 --> 01:09:58,240
Af hverju ekki?

744
01:09:59,720 --> 01:10:02,040
Því að það er mjög eigingjarnt.

745
01:10:03,040 --> 01:10:04,840
Og mjög sorglegt.

746
01:10:05,520 --> 01:10:08,240
Hefurðu hugleitt

747
01:10:08,320 --> 01:10:10,640
hversu mikil ábyrgð það er
að eiga barn?

748
01:10:10,720 --> 01:10:13,840
Nú? Ég hafði ekki hugmynd.
Auðvitað veit ég það.

749
01:10:15,920 --> 01:10:19,040
- Þú getur enn farið í fóstureyðingu.
- Hvað þá?

750
01:10:19,120 --> 01:10:22,640
Mig minnir að það sé
í lagi fram að 12 viku.

751
01:10:22,720 --> 01:10:28,960
Hægan nú. Þú færð ekki að hafa neitt
um mig eða mína meðgöngu að segja.

752
01:10:30,200 --> 01:10:34,120
Hvað þá um það
hvort ég fari í þungunarrof!

753
01:10:34,200 --> 01:10:39,080
Getum við nú samt ekki
rætt málin?

754
01:10:39,160 --> 01:10:40,720
Ég hef rétt á minni skoðun.

755
01:10:40,800 --> 01:10:44,520
Þegi þú nú bara og lokaðu augunum.
Þú ert með heilahristing.

756
01:10:47,960 --> 01:10:51,040
Þetta er mín ákvörðun.

757
01:10:51,640 --> 01:10:57,080
Þú þarft ekki að hafa neitt með mig
eða barnið mitt að gera.

758
01:10:57,800 --> 01:10:59,120
Alls ekkert.

759
01:11:02,520 --> 01:11:04,240
Ég mun aldrei...

760
01:11:05,440 --> 01:11:10,160
Ég mun aldrei
ræða þetta við þig aftur.

761
01:11:19,800 --> 01:11:22,600
Hæ. Loksins svarar þú.

762
01:11:23,560 --> 01:11:26,360
Þú veist að það er
enginn tímamunur.

763
01:11:26,440 --> 01:11:28,840
Ég þarf svo mikið að tala við þig.

764
01:11:30,440 --> 01:11:33,960
Þegar klukkan er drullumargt á Spáni
er hún það líka í Danmörku.

765
01:11:34,800 --> 01:11:37,840
- Fyrirgefðu.
- Þetta þarf að bíða til morguns.

766
01:11:38,600 --> 01:11:42,200
- Klukkan er orðin svo margt...
- Allt í lagi. Bless.

767
01:12:43,520 --> 01:12:44,840
Sæl.

768
01:12:46,080 --> 01:12:47,400
Sæl.

769
01:12:58,040 --> 01:12:59,960
- Hæ.
- Hæ.

770
01:13:00,040 --> 01:13:03,600
Guð, Tito, renndu upp klaufinni.
Sú klikkaða er mætt.

771
01:13:05,120 --> 01:13:07,720
Hvað sagði móðir þín?

772
01:13:07,800 --> 01:13:09,640
Gömul spænsk kveðja.

773
01:13:10,240 --> 01:13:11,560
Nú, ég skil.

774
01:13:13,200 --> 01:13:15,800
Gracias. Og...

775
01:13:16,480 --> 01:13:18,680
Buenos días. En ég...

776
01:13:18,760 --> 01:13:23,160
- Ég geri annan cortado handa þér.
- Nei, ég bara...

777
01:13:25,120 --> 01:13:27,120
Varðandi eldamennskuna...

778
01:13:27,200 --> 01:13:30,960
Nei, nei. Þetta er Galisía.

779
01:13:31,040 --> 01:13:33,440
Við gerum besta matinn
á Spáni.

780
01:13:33,520 --> 01:13:36,520
- Já, auðvitað.
- Móðir mín var frábær kokkur.

781
01:13:36,600 --> 01:13:39,920
En nú er hún gömul
og með smá heilabilun.

782
01:13:40,000 --> 01:13:42,160
Við gerum okkar besta.

783
01:13:42,240 --> 01:13:46,040
Auðvitað. Ég vildi bara
spyrja hvort ég mætti...

784
01:13:46,120 --> 01:13:48,360
Hvort ég mætti hjálpa til
í eldhúsinu.

785
01:13:49,520 --> 01:13:52,520
- Þú?
- Já, ég get eldað.

786
01:13:53,160 --> 01:13:56,040
Já. Og ég myndi... Ég...

787
01:13:56,880 --> 01:13:59,080
Ég þarf að hafa eitthvað að gera.

788
01:13:59,760 --> 01:14:03,240
Hún vill hjálpa til í eldhúsinu.
Hún segist kunna að elda.

789
01:14:03,320 --> 01:14:07,720
Já, fyllum eldhúsið af gröðum konum.
Það verður nú meiri veislan.

790
01:14:09,000 --> 01:14:10,480
Sí? Já?

791
01:14:10,560 --> 01:14:12,120
- Sí, sí.
- Þýðir þetta já?

792
01:14:12,200 --> 01:14:14,920
- Já.
- Gracias, señora.

793
01:14:15,840 --> 01:14:17,440
Látum okkur sjá.

794
01:14:20,000 --> 01:14:23,000
Ég gæti eldað þessa ætiþistla.

795
01:14:24,840 --> 01:14:26,160
Með jamón.

796
01:14:26,680 --> 01:14:28,560
Hún vill elda ætiþistla
með skinku.

797
01:14:28,640 --> 01:14:30,960
- Það er mjög gott.
- Gott og vel.

798
01:14:55,360 --> 01:14:56,680
Ég set þetta hér.

799
01:14:58,280 --> 01:14:59,600
Gjörðu svo vel.

800
01:15:00,760 --> 01:15:02,080
Borðaðu.

801
01:15:03,520 --> 01:15:06,160
Nei, við ætlum ekki
að ræða þetta aftur.

802
01:15:07,920 --> 01:15:09,240
Borðaðu matinn þinn.

803
01:15:30,000 --> 01:15:33,000
Móðir þín virðist vera
með mjög...

804
01:15:33,600 --> 01:15:37,200
- Stóran persónuleika.
- Ég trúi því.

805
01:15:56,720 --> 01:16:01,640
Í dag eru sex vikur liðnar
síðan móðir mín dó.

806
01:16:09,960 --> 01:16:13,480
Það er skrítið
þegar þau hverfa.

807
01:16:14,760 --> 01:16:16,640
- Já.
- Þau voru alltaf þarna.

808
01:16:17,240 --> 01:16:19,120
Og allt í einu eru þau það ekki.

809
01:16:23,840 --> 01:16:26,480
Ég er satt að segja farin
að sakna hennar svolítið.

810
01:16:30,800 --> 01:16:32,120
Já.

811
01:16:34,160 --> 01:16:39,160
Mér leið eins og mjög kaldlyndri
manneskju. Fyrir að...

812
01:16:40,720 --> 01:16:42,040
sakna hennar ekki.

813
01:16:42,720 --> 01:16:44,960
Kaldlynd? Þú?

814
01:16:46,440 --> 01:16:48,360
Það held ég nú ekki.

815
01:16:51,240 --> 01:16:52,560
Tito!

816
01:16:53,640 --> 01:16:56,440
Spurðu snillinginn hvort hún ætli
að elda kvöldmat líka.

817
01:16:57,400 --> 01:17:02,280
Móðir mín spyr hvort þú vildir vera
svo væn að hjálpa með kvöldmatinn.

818
01:17:02,840 --> 01:17:04,240
Já, gjarnan.

819
01:17:05,880 --> 01:17:07,200
Já.

820
01:18:15,320 --> 01:18:17,240
Og handa þér...

821
01:18:24,400 --> 01:18:26,000
Hvað með heilahristinginn?

822
01:18:26,080 --> 01:18:28,040
Höfuðverkurinn er horfinn.

823
01:18:29,160 --> 01:18:31,320
- Og ég er glorhungraður.
- Gott.

824
01:18:32,160 --> 01:18:33,480
Fáðu þér sæti.

825
01:19:02,400 --> 01:19:03,720
Takk fyrir matinn.

826
01:19:05,360 --> 01:19:06,680
Verði þér að góðu.

827
01:19:09,440 --> 01:19:11,040
Hugsa sér að þú...

828
01:19:13,520 --> 01:19:18,640
- Hugsa sér að þú...
- Í alvöru talað, pabbi. Hættu þessu.

829
01:19:22,440 --> 01:19:25,160
- Skrúfaðu aðeins niður í dramanu.
- Allt í lagi.

830
01:19:55,280 --> 01:19:58,720
Pabbi... Ég finn út úr þessu.

831
01:20:00,600 --> 01:20:02,040
Það eru...

832
01:20:04,400 --> 01:20:08,360
margar konur sem ráða við
að ala upp barn einar. Ekki satt?

833
01:20:09,320 --> 01:20:13,000
Vissirðu að mömmu þína dreymdi um
að eignast barnabarn?

834
01:20:15,800 --> 01:20:18,360
Ímyndaðu þér ef hún hefði upplifað
að verða amma.

835
01:20:21,080 --> 01:20:23,520
Samband okkar
olli henni þjáningu.

836
01:20:23,600 --> 01:20:26,360
Hversu hatrammt
samband okkar var.

837
01:20:27,880 --> 01:20:32,120
Að það var komið á það stig
að við vorum hætt að hittast.

838
01:20:37,040 --> 01:20:40,320
- Manstu eitthvað eftir því?
- Man ég hvað?

839
01:20:42,640 --> 01:20:43,960
Ja...

840
01:20:46,360 --> 01:20:50,640
Manstu af hverju við hættum
að hitta hvort annað?

841
01:20:52,680 --> 01:20:54,520
Manstu hvað þú kallaðir mig?

842
01:20:56,480 --> 01:20:57,800
Tja...

843
01:20:58,760 --> 01:21:00,640
Þú kallaðir mig...

844
01:21:03,120 --> 01:21:05,800
vonbrigði lífs þíns.

845
01:21:14,160 --> 01:21:15,960
- Einmitt.
- Já.

846
01:21:17,680 --> 01:21:20,880
- Ég var búinn að drekka of mikið.
- Já.

847
01:21:23,200 --> 01:21:24,520
Sennilega.

848
01:21:29,720 --> 01:21:32,720
Það er ekki það
að það hafi verið svo sárt...

849
01:21:34,440 --> 01:21:36,480
að þú sagðir það. Það var meira...

850
01:21:39,160 --> 01:21:41,840
Það var sú staðreynd
að þú virkilega meintir það.

851
01:21:44,800 --> 01:21:46,640
Þannig sérðu mig.

852
01:21:47,960 --> 01:21:50,480
Ég held að þú lesir of mikið
í þetta.

853
01:21:53,240 --> 01:21:54,640
Er það hægt?

854
01:21:56,440 --> 01:21:58,440
Er hægt að lesa of mikið
í þetta?

855
01:22:00,640 --> 01:22:03,640
En Regitze...
Sjáðu þig núna.

856
01:22:03,720 --> 01:22:06,160
- Þú getur nært líkama fólks.
- Já, en...

857
01:22:09,440 --> 01:22:14,040
- Móðir þín nærði sálir fólks.
- Ég þarf ekki hrós frá þér núna.

858
01:22:20,800 --> 01:22:25,960
En Regitze...
Ég sannfærði mig einu sinni

859
01:22:27,280 --> 01:22:29,760
um að ég væri mikill hugsuður.

860
01:22:30,640 --> 01:22:33,200
Ha? Og ég var viss um...

861
01:22:34,280 --> 01:22:38,800
að ég myndi skrifa mikilvægar bækur
sem myndu breyta heiminum.

862
01:22:38,880 --> 01:22:41,600
En ég endaði
sem menntaskólakennari.

863
01:22:42,160 --> 01:22:43,960
Sem afi þinn
kunni ekki að meta,

864
01:22:44,040 --> 01:22:46,520
svo hann hæddist alltaf að mér
þegar við hittumst.

865
01:22:46,600 --> 01:22:47,920
Og...

866
01:22:49,240 --> 01:22:53,400
Hann gekk úr skugga um að ég vissi
hversu mikil vonbrigði ég væri.

867
01:22:54,800 --> 01:22:58,280
Svo mér fannst ég misheppnaður.

868
01:22:59,720 --> 01:23:01,040
Skilurðu?

869
01:23:15,200 --> 01:23:17,280
Þannig er ég orðinn.

870
01:23:18,560 --> 01:23:23,280
Maður sem getur vakið á sér athygli
og vitnað í Kierkegaard.

871
01:23:26,160 --> 01:23:27,480
Já, en...

872
01:23:28,800 --> 01:23:30,200
Það er nú eitthvað.

873
01:23:31,880 --> 01:23:34,400
Ég er ekki viss,
en það er of seint að breyta því.

874
01:23:41,880 --> 01:23:47,280
En heyrðu, ég hef beint
öllum mínum vonbrigðum að þér...

875
01:23:47,920 --> 01:23:50,840
- Það er ekki sanngjarnt.
- Nei.

876
01:23:51,640 --> 01:23:53,520
Svo drekk ég líka of mikið.

877
01:23:55,320 --> 01:23:58,880
- Ég hef líka haldið framhjá.
- Ég þarf ekki að vita það.

878
01:23:59,520 --> 01:24:02,520
- Móðir þín svaf líka hjá Heine.
- Hættu nú.

879
01:24:04,800 --> 01:24:06,120
Jú.

880
01:24:07,440 --> 01:24:08,760
Svo...

881
01:24:12,720 --> 01:24:14,600
Það er sorgin og söknuðurinn.

882
01:24:17,840 --> 01:24:19,680
Og skömmin og sektarkenndin.

883
01:24:20,800 --> 01:24:23,000
Yfir því hvernig við
breyttum hvort öðru.

884
01:24:23,800 --> 01:24:27,520
Móðir þín sagði að Drottinn myndi
lækna skömmina og sektarkenndina.

885
01:24:30,680 --> 01:24:32,200
En sorgin og söknuðurinn...

886
01:24:34,080 --> 01:24:35,760
Ég sit einn uppi með það.

887
01:25:18,880 --> 01:25:20,200
Hæ.

888
01:25:52,560 --> 01:25:56,640
Þetta var frábært. Takk.
Takk fyrir tónlistina.

889
01:25:56,720 --> 01:25:59,120
- La cena.
- Kvöldverðurinn.

890
01:25:59,200 --> 01:26:01,720
- Ó, kvöldverðurinn. Já. Sí.
- Buenísima.

891
01:26:01,800 --> 01:26:03,320
Takk fyrir.

892
01:26:06,320 --> 01:26:07,640
Vá.

893
01:26:10,440 --> 01:26:13,720
Það sjá allir ánægju þína
og ástríðu fyrir matseld.

894
01:26:15,440 --> 01:26:19,440
Ég veit það nú ekki.
Þetta er bara smá olía og...

895
01:26:21,120 --> 01:26:25,480
laukur
og fallega grænmetið ykkar.

896
01:26:39,360 --> 01:26:40,680
Já?

897
01:26:47,960 --> 01:26:49,360
Ég er ófrísk.

898
01:26:53,080 --> 01:26:56,320
Embarazada? Ertu barnshafandi?

899
01:26:57,080 --> 01:27:02,040
Já. Það er enginn faðir.
Enginn pabbi, en ég...

900
01:27:03,480 --> 01:27:05,120
er með barni. Litlu.

901
01:27:05,840 --> 01:27:09,360
- Til hamingju, býst ég við.
- Takk fyrir.

902
01:27:09,440 --> 01:27:11,840
Já, ég er...

903
01:27:13,200 --> 01:27:16,720
Ég er ánægð. Held ég.

904
01:27:22,080 --> 01:27:25,360
Ég er með... móður mína.

905
01:27:25,440 --> 01:27:28,200
- Já.
- Ég þarf að hjálpa.

906
01:27:28,280 --> 01:27:31,280
- Annars gleymir hún.
- Einmitt.

907
01:27:31,360 --> 01:27:33,920
- Að fara í rúmið... Og...
- Fara að sofa...

908
01:27:34,000 --> 01:27:36,280
Ég þarf að dekka borðið
fyrir morgunverðinn

909
01:27:36,360 --> 01:27:38,160
og undirbúa fyrir svefninn.

910
01:27:38,240 --> 01:27:40,200
- Já, auðvitað.
- Allt í lagi?

911
01:28:13,720 --> 01:28:15,040
Ég er þreyttur.

912
01:28:16,680 --> 01:28:18,000
Förum heim.

913
01:28:19,000 --> 01:28:20,800
Getur biðill þinn
ekki skutlað okkur?

914
01:28:21,960 --> 01:28:24,200
Hann er ekki biðill minn.

915
01:28:28,600 --> 01:28:32,920
Hvað með dómkirkjuna og kertið sem
við ætluðum að tendra fyrir mömmu?

916
01:28:33,840 --> 01:28:36,240
Við náum því áður en við förum
á flugvöllinn.

917
01:28:58,000 --> 01:29:00,960
DAGUR 11

918
01:29:01,040 --> 01:29:04,160
5 KM EFTIR

919
01:29:09,200 --> 01:29:12,200
- Er dómkirkjan ekki falleg?
- Jú, hún er falleg.

920
01:29:13,200 --> 01:29:15,240
Hún er stórkostleg.

921
01:29:46,720 --> 01:29:48,080
Ertu að koma?

922
01:29:51,040 --> 01:29:52,680
Nei, ég kem ekki.

923
01:29:55,760 --> 01:29:57,360
Hvað nú?

924
01:29:58,400 --> 01:30:00,800
Ég get ekki séð það lengur.

925
01:30:01,520 --> 01:30:03,160
Séð hvað?

926
01:30:03,240 --> 01:30:05,960
Ég vil frekar bara
fá mér kaffibolla.

927
01:30:06,040 --> 01:30:08,960
Við mamma þín gerðum það alltaf
þegar við ferðuðumst.

928
01:30:09,040 --> 01:30:14,840
Fengum okkur kaffi
og horfðum á mannlífið.

929
01:30:14,920 --> 01:30:19,480
Horfðum á lífið líða hjá.
Ég vil frekar gera það.

930
01:30:20,680 --> 01:30:22,280
Ég vil taka mömmu með.

931
01:30:24,320 --> 01:30:25,720
Gott og vel.

932
01:30:35,040 --> 01:30:36,360
Móðir mín.

933
01:31:30,400 --> 01:31:32,640
- Halló.
- Nei, halló!

934
01:31:32,720 --> 01:31:34,160
Sæl.

935
01:31:34,880 --> 01:31:36,760
Ertu búinn
að fara inn í dómkirkjuna?

936
01:31:37,520 --> 01:31:43,720
Nei. Ég hef séð margar kirkjur
og dómkirkjur um ævina.

937
01:31:43,800 --> 01:31:46,120
Ertu trúmaður
eða arkitekt?

938
01:31:49,560 --> 01:31:51,160
Ó, takk.

939
01:31:55,880 --> 01:31:59,840
Konan mín var trúuð.
Hún var prestur.

940
01:32:00,600 --> 01:32:01,960
Safnaðarprestur.

941
01:32:04,200 --> 01:32:05,520
En þú?

942
01:32:07,560 --> 01:32:10,120
Tja, í augnablikinu
er ég kaffidrykkjumaður.

943
01:32:19,680 --> 01:32:22,720
Það er mjög falleg dómkirkja
í Zagreb.

944
01:32:24,880 --> 01:32:27,160
Ókei. Ég hef ekki heyrt um hana.

945
01:32:31,840 --> 01:32:36,400
Ef þú ferð einhvern tíma til Zagreb,
skaltu hringja í mig.

946
01:32:37,240 --> 01:32:38,720
Ég skal sýna þér hana.

947
01:32:49,320 --> 01:32:53,880
- Er það ekki það sem við gerum?
- Hvað gerum við?

948
01:32:54,880 --> 01:32:56,240
Við drekkum kaffi.

949
01:32:57,320 --> 01:32:58,880
Við hittum nýtt fólk.

950
01:33:00,480 --> 01:33:04,160
Við höldum leiðar okkar.
Höldum ótrauð áfram.

951
01:33:08,320 --> 01:33:10,880
Jæja þá... Vertu sæll.

952
01:33:12,920 --> 01:33:14,240
Vertu sæl.

953
01:33:48,560 --> 01:33:52,240
Er út í hött að kveikja á kerti
fyrir manneskju sem er á lífi?

954
01:33:56,840 --> 01:34:01,000
Þú getur kveikt á kerti
fyrir einhvern sem þú hefur misst

955
01:34:01,080 --> 01:34:04,000
eða fyrir einhvern sem þú saknar.

956
01:34:05,480 --> 01:34:08,600
Fyrir nýfætt barn.
Fyrir alla.

957
01:34:16,320 --> 01:34:20,760
Þetta er fyrir barnið mitt.
Þetta er fyrir föður minn.

958
01:34:32,880 --> 01:34:34,320
Og hvar ert þú?

959
01:34:40,800 --> 01:34:42,120
Ég veit það ekki.

960
01:34:55,160 --> 01:34:56,680
Þakka þér fyrir.

961
01:34:56,760 --> 01:34:59,680
- Takk fyrir að annast mig.
- Það var lítið, papá.

962
01:35:07,840 --> 01:35:10,760
Svo... Já...

963
01:35:16,560 --> 01:35:21,000
Fyrir mér var gleði sumarsins
að kynnast þér.

964
01:35:21,080 --> 01:35:22,440
Í alvöru talað.

965
01:35:23,520 --> 01:35:24,840
Fyrir mér líka.

966
01:35:29,680 --> 01:35:31,320
Jæja...

967
01:35:31,400 --> 01:35:32,720
Vertu sæll.

968
01:35:34,200 --> 01:35:35,520
- Hvað ertu að gera?
- Hvað?

969
01:35:35,600 --> 01:35:37,080
Leyfirðu honum bara að fara?

970
01:35:38,440 --> 01:35:42,560
Ég sagði honum að ég sé ófrísk
og það slekkur á flestum körlum...

971
01:35:42,640 --> 01:35:46,640
Þú ert bara einstæð móðir
sem er komin stutt á leið.

972
01:35:47,360 --> 01:35:51,360
Ef þú leyfir honum að fara muntu
aldrei vita hvað hefði geta orðið.

973
01:35:52,320 --> 01:35:55,400
Augnablikið er núna,
allt í einu verður það of seint.

974
01:35:56,480 --> 01:35:57,800
Er allt í góðu?

975
01:35:59,640 --> 01:36:00,960
Já.

976
01:36:03,280 --> 01:36:04,600
- Ekki horfa.
- Allt í lagi.

977
01:36:14,720 --> 01:36:16,840
Ég... Það er vegna þess að...

978
01:36:19,000 --> 01:36:20,840
mig langar að hitta þig aftur.

979
01:36:22,400 --> 01:36:23,800
Já.

980
01:36:25,360 --> 01:36:26,680
Mig langar að...

981
01:36:27,800 --> 01:36:30,280
kynnast þér betur.

982
01:36:32,440 --> 01:36:36,880
Koma kannski til baka
og elda mat og...

983
01:36:38,880 --> 01:36:42,920
Sjá hvað gerist hjá okkur.

984
01:36:47,080 --> 01:36:49,360
Ég veit. Ólétt. Óaðlaðandi.

985
01:36:49,440 --> 01:36:54,160
Nei, það er ekki það.
Ég get ekki haft konu í lífi mínu.

986
01:36:54,240 --> 01:36:56,040
Ekki neina konu.

987
01:36:57,640 --> 01:37:02,200
- Svo þú ert fyrir karlmenn? Eða...
- Nei.

988
01:37:02,280 --> 01:37:07,320
Ég hef skuldbundið mig til
að fara í klaustrið 1. ágúst.

989
01:37:11,280 --> 01:37:14,000
Hvað þá? Af hverju?

990
01:37:17,200 --> 01:37:20,160
- Vegna þess að ég trúi á Guð.
- Einmitt.

991
01:37:21,280 --> 01:37:25,920
- Samos-klaustrið er það stærsta.
- Ég veit. Ég var þar. Já.

992
01:37:27,440 --> 01:37:34,280
Ef það hjálpar, þurfti ég að endur-
skoða málið þegar við kynntumst.

993
01:37:35,240 --> 01:37:39,240
- Í alvöru talað.
- Það hjálpar. Örlítið, já.

994
01:37:41,760 --> 01:37:43,920
Mér þykir það svo leitt.
Mín vegna líka.

995
01:37:46,960 --> 01:37:51,480
Farðu og gerðu það sem þú þarft
að gera og...

996
01:37:53,560 --> 01:38:00,360
Og ef þið Guð hættið einhvern tíma
saman skaltu hringja í mig.

997
01:38:00,440 --> 01:38:02,480
Þú verður sú fyrsta sem ég hringi í.

998
01:38:03,880 --> 01:38:06,720
- Móðir mín verður númer tvö.
- Allt í lagi.

999
01:38:07,880 --> 01:38:12,000
- En... mér er alvara.
- Mér líka.

1000
01:38:15,440 --> 01:38:17,560
- Gott og vel.
- Allt í lagi.

1001
01:38:23,040 --> 01:38:24,360
Þakka þér fyrir.

1002
01:38:36,160 --> 01:38:39,840
Af hverju vill asninn verða munkur
þegar hann getur fengið þig?

1003
01:38:43,800 --> 01:38:47,400
Átti þetta að vera hrós?

1004
01:38:55,120 --> 01:38:59,640
Ef þú getur eldað ofan í 100 manns,
ræður þú sennilega líka við barn.

1005
01:39:00,480 --> 01:39:02,600
Er það ekki?

1006
01:39:10,480 --> 01:39:13,320
Það er enginn föðurafi
eða föðuramma.

1007
01:39:16,200 --> 01:39:19,120
Og heldur engin móðuramma.

1008
01:39:22,560 --> 01:39:23,880
En...

1009
01:39:25,640 --> 01:39:27,960
Það er móðurafi, ekki satt?

1010
01:39:37,720 --> 01:39:40,560
Ég get verið móðurafi ef þú vilt.

1011
01:39:52,520 --> 01:39:54,680
Ekki horfa á mig þegar ég græt.

1012
01:39:55,520 --> 01:39:57,600
Ég lít út eins og lítil kanína.

1013
01:40:06,360 --> 01:40:10,040
- Þetta er ekki svo slæmt.
- Þetta er viðbjóðslegt.

1014
01:40:41,680 --> 01:40:45,240
Þýðandi: Kristín Ólafsdóttir
plint.com



